Í fjarþjálfuninni minni færðu aðgang að öflugu þjálfunarappi sem auðveldar þér að fylgjast og hafa allt á einum stað. Þar sérðu t.d.
Ég fylgi þér hvert skref á leiðinni með jákvæðri hvatningu, aðhaldi og fræðslu svo að þú náir heilsumarkmiðunum þínum.
Mánaðargjald í fjarþjálfun er: 14,900,-
Ég er 51 árs og kláraði einkaþjálfaranámið fyrir 14 árum og vann sem einkaþjálfari í World Class.
Ég hef sjálf upplifað áskoranir á minni vegferð og skil hvað það getur verið erfitt að halda sér á réttri braut. Fyrir 26 árum vóg ég 135, en náði mér niður í 69.
Svo ég veit að þetta er ekki alltaf auðvelt - en ég veit að það er hægt! Með breytingum í mataræði, hreyfingu og stuðningi vina og fjölskyldu (sérstaklega afa :)), tókst mér að ná mínu besta formi aftur.
Þessi reynsla veitti mér innblástur til að hjálpa öðrum.
Ég þekki það persónulega hvað það skiptir miklu máli að hafa stuðning, og það þarf meira en að mæta á æfingu og borða prótein stykki.
Ég veit líka að lífið er ekki alltaf auðvelt og getur slegið okkur út af sporinu. Ég fékk öll mín aukakíló í smá heimsókn þegar ég var ófrísk og eftir fæðingu. Ég sé samt ekki eftir einu kílói.
Mér fannst dásamlegt að vera mamma og fannst ég vera það fallegasta í heiminum. Vegna þess að ég var það. Það er ekkert fallegra en nýbökuð móðir.
Við erum líka öll falleg í okkar skinni. En stundum viljum við breyta til og þá er hjálplegt að fá rétt tól í hendurnar og góðan stuðning til þess að halda sér við efnið.
Sjálf hef ég einnig lent í meiðslum og áskorunum. Ég hef slitið liðbönd í hné og ökkla, lent í bílsslysi og nýlega nældi ég mér í brjósklos
Ég hef verið áskrifandi í sjúkraþjálfun með allan þennan klaufaskap og hef alltaf ákveðið að taka þetta á jákvæðan hátt, og hugsa frekar hvað ég get lært betur á líkamann í öllum þessum tímum hjá sjúkraþjálfurum sem ég hef mætt í.
Hvernig ég þarf þá að breyta einhverjum æfingum út frá hvaða áverka ég er að díla við
Já svo þetta yndislega breytingarskeið… þá er það líka lærdómur og manni finnst stundum eins og maður sé að kynnast líkamanum sínum aftur. Það er margt sem breytist hjá okkur konunum með líkamann og mataræðið.
Einnig hvað það er mikilvægt að passa upp á vöðvastyrkinn, jafnvægi og fleira sem hjálpar okkur að verða virkari á efri árum.
Ég elska að vinna þar sem ég get gefið af mér og hjálpað fólki. Og ég þekki þetta ferli allt saman af eigin reynslu, hæðir og lægðir því þær koma hjá öllum.
Og ég veit að árangur kemur með stuðningi, smá skrefum og jákvæðni. Það sem þú færð hjá mér er ekki bara þjálfun heldur stuðningur, pepp og hrós í þessu ferli.
Ég trúi því og veit það sjálf að öll litlu skrefin sem maður tekur, verða að því markmiði sem þú ætlar að ná .
Við eigum að trúa á okkur, en líka að sýna okkur mild í lífinu.
Ósk